Frístundakortin fyrir árið 2013
05.02.2013
Tilkynningar
Frístundakortin eru komin í sölu fyrir næsta ár og gilda frá 1. febrúar 2013 til 31. janúar 2014. Verðið er óbreytt
frá fyrra ári en kortið kostar 3.000.- kr. fyrir fyrsta barn, 2.000.- krónur fyrir annað barn og frítt fyrir næstu börn í
fjölskyldu.
Frístundakortið gildir fyrir aldurshópinn 6-17 ára (barn sem verður 6 ára á árinu er í þessum hópi).
Tekið er við skráningu og greiðslu vegna frístundakorta í sundlaugum í Norðurþingi.