Fyrirlestraröð Háskóla Íslands: Best fyrir börnin
Skólaþjónusta Norðurþings vill vekja athygli á því að á næstunni verður Háskóli Íslands með fyrirlestraröð sem gengur undir nafninu Best fyrir börnin. Dagsetningar hafa verið birtar með fyrirvara á síðunni https://www.hi.is/haskolinnogsamfelagid og er fólk hvatt til þess að kynna sér þessa dagskrá.
Fyrsti fyrirlesturinn bar yfirskriftina “ Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna”. Fyrirlesarinn Dr. Urður Njarðvík fór mjög vel með umræðuefnið, sagði frá á mannamáli og er þessi fyrirlestur nánast skylduáhorf fyrir fagfólk og foreldra. Fyrirlestrinum var streymt og verður áfram aðgengilegur á heimasíðu HÍ. Svo verður einnig um komandi fyrirlestra.
Fólk er hvatt til þess að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að fá fróðleik “heim í stofu” öllum að kostnaðarlausu.