Fyrsti sjórnarfundur Rannsóknarstöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn
13.06.2014
Tilkynningar
Fyrsti stjórnarfundur Rannskóknarstöðvarinnar Rifs ses var haldinn á Raufarhöfn miðvikudaginn 11. júní en stjórnina skipa eftirtaldir
aðilar:
Þorkell Lindberg Þórarinsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands – formaður stjórnar.
Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands en hún er fulltrúi Háskólans á Akureyri og Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar – varaformaður stjórnar.
Starri Heiðmarsson fagsviðsstjóri og fulltrúi Náttúrufræðistofnunar Íslands – ritari stjórnar.
Hlynur Óskarsson dósent og fulltrúi Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands.
Níels Árni Lund skrifstofustjóri og fulltrúi Norðurþings.
Fundurinn hófst á hádegisverði á Hótel Norðurljósum en síðan var fundað í gistiheimilinu Hreiðrinu, sem mun
hýsa aðstöðu rannsóknastöðvarinnar til að byrja með.
Í upphafi fundar afhentu Kristján Þórhallur Halldórsson, starfsmaður Byggðastofnunar á Raufarhöfn og Þorkell Lindberg
stjórninni staðfesta skipulagsskrá stöðvarinnar og báru henni um leið góðar kveðjur frá Aðalsteini Þorsteinssyni,
forstjóra Byggðastofnunar og Bergi Elíasi Ágústssyni bæjarstjóra Norðurþings, en Byggðastofnun, Náttúrustofan og
Norðurþing eru stofnaðilar stöðvarinnar. Á fundinum var farið yfir næstu skref varðandi starfsemi stöðvarinnar og var mikill hugur í
stjórnarmönnum um að gera veg rannsóknastöðvarinnar sem mestan og bestan. Samþykkt var að stöðin myndi gerast formlegur aðili að
INTERACT (International Network for Terrestrial Research and Monitoring in the Artic) sem er alþjóðlegt net rannsóknastöðva á heimskautasvæðum, en
í þeirri aðild felast ýmis tækifæri fyrir starfsemi og rekstur stöðvarinnar. Auk þess lögðu stjórnarmenn áherslu á
að stöðin verði kynnt sem víðast ásamt því að henni verði tryggt fjármagn til rekstrar næstu árin. Til framtíðar
er stefnt að ráðningu framkvæmdastjóra fyrir stöðina. Vonir standa til að vísindamenn muni nýta sér aðstöðu
stöðvarinnar strax í sumar.
Að loknum fundi var farið í skoðunarferð um Melrakkasléttu undir leiðsögn heimamannanna Guðmundar Arnar Benediktssonar frá Kópaskeri og
Níelsar Árna Lund. (nna.is)
Stjórn Rannsóknastöðvarinnar Rifs ásamt fylgdarliði. Frá vinstri: Starri Heiðmarsson, Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir
sem var gestur fundarins, Embla Eir Oddsdóttir, Níels Árni Lund, Þorkell Lindberg Þórarinsson, Guðmundur Örn Benediktsson leiðsögumaður
og Hlynur Óskarsson