Fara í efni

Ganga Ferðafélagsins Norðurslóðar

Næstkomandi laugardag, þann 4. september, er fyrirhuguð ganga á vegum Ferðafélagsins Norðurslóðar.  Gengið verður meðfram Jökulsá að austan frá Vestaralandi í Öxarfirði og að Gloppu.

Næstkomandi laugardag, þann 4. september, er fyrirhuguð ganga á vegum Ferðafélagsins Norðurslóðar.  Gengið verður meðfram Jökulsá að austan frá Vestaralandi í Öxarfirði og að Gloppu.

Þetta verður létt og skemmtileg fjölskylduganga um fáfarnar slóðir í ævintýralegu og undurfallegu umhverfi Jökulsárgljúfra. Fólki er bent á að taka með sér nesti og nýja, vel þjálfaða skó. Mæting er við Vestaraland kl. 13:00.  

Veðurspáin er góð og vonast eftir góðri þátttöku.

Formaður