Gasmengunin á norðanverðu landinu
22.10.2014
Tilkynningar
Undanfarna daga hefur brennisteinsmengun frá eldgosinu í Holuhrauni dreifst víða og nú síðast í nótt og í gær voru
mæld há gildi á Höfn í Hornafirði og nágrenni.
Nú er vindur að snúa sér og brennisteinsmengunin á Höfn í Hornafirði gengin niður. Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni er
nú að berast til Húsavíkur, Mývatnssveitar og nærsveita. Loftgæðamælar við Mývatn eru að sýna 800 - 1200 µg/m3 eða 0,3 - 0,4 ppm og eru loftgæði því
slæm þar fyrir viðkvæma. Upplýsingar um áhrif SO2 á heilsu og viðbrögð er hægt að nálgast á vefsíðu
Umhverfisstofnunar www.ust, hjá Embætti landlæknis www.landlaeknir.is og á
vefsíðu almannavarna. Frétt af almannavarnir.is |