Góðverk á jólum
Aðstaða sumra barna eru þannig að þau eiga ekki von á jólagjöfum um jólin. Góðverk á jólum er samfélagslegt verkefni íbúa svæðisins, Húsavíkurstofu, Sjóvár og Sparisjóðs s-þingeyinga. Verkefnið er eyrnamerkt barnafjölskyldum sem þurfa að þiggja aðstoð frá Velferðarsjóði þingeyinga fyrir jólin. Í gegnum sjóðinn sér þetta samfélagslega verkefni leið til þess að aðstoða foreldra í erfiðri aðstöðu fjárhagslega til að kaupa gjöf fyrir sitt barni.
Svona gerir þú góðverk á jólum:
- Verslaðu Húsavíkurgjafabréf í Sparisjóði s-þing. á Húsavík að verðmæti 3.000 kr.
- Komdu með gjafabréfið í jólakassann í Sjóvá.
Starfsmenn Sjóvár munu taka að sér að varðveita gjafabréfin þar til þau verða færð Velferðasjóði Þingeyinga til úthlutunar 1. desember.
Sjóvá hefur riðið á vaðið og gefið verkefninu 50 skt gjafabréf að upphæð 3.000 kr hver.