Fara í efni

Göngum í skólann

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í átjánda sinn miðvikudaginn 4. september næstkomandi. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og fyrsta árið voru þátttökuskólar 26 en alls 83 skólar skráðu sig til leiks árið 2024.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Nemendur og íbúar allir eru hvattir til að nota virkan ferðamáta í og úr skóla og vinnu. 

Göngum í skólann líkur miðvikudaginn 2. október, sem er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn

Vefsíða Göngum í skólann er gongumiskolann.is