Græna tunnan rétt flokkun - öryggi starfsfólks
12.06.2019
Tilkynningar
Íslenska gámafélagið vill koma eftirfarandi á framfæri:
Við höfum verið að fá þó nokkuð magn af hlutum sem eiga ekki heima í endurvinnslu til okkar í flokkunarskemmuna. Þar má helst nefna gler og aðra oddhvassa hluti, einnig er algengt að finna þar sóttmengaðan úrgang frá heilbrigðisstofnunum s.s. vökvadreypi og nálar.
Það er mjög mikilvægt að þessi hlutir fari ekki í Grænu tunnu Íslenska Gámafélagsins vegna þess að endurvinnsluhráefnið er handflokkað. Beittir hlutir og sóttmengaðir geta skaðað starfsfólk okkar að störfum.
Fyrirfram þakkir - Íslenska Gámafélagið