Fara í efni

Greiðsluáskorun

Innheimtudeild Norðurþings skorar hér með á gjaldendur sem eru með gjöld sín í vanskilum að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 20 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar.

Innheimtudeild Norðurþings skorar hér með á gjaldendur sem eru með gjöld sín í vanskilum að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 20 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar.

Athygli er vakin á því að auk óþæginda hafa vanskil í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldendur.  Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil og koma þannig í veg fyrir frekari óþægindi og kostnað. 

Þá mega gjaldendur, sem virða ekki áskorun þessa,  búast við lögfræðiinnheimtu án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum.

Starfsfólk sveitarfélagsins leggur sig ávalt fram um að greiða úr málum eins og kostur er.  Settu þig því í samband – því fyrr, því betra.

Aðalnúmer Norðurþings er 464-6100

Húsavík, 11. nóvember 2011

F.h.  Norðurþings

Guðbjartur Ellert Jónsson
Fjármálastjóri