Grunnskólakennara vantar við Borgarhólsskóla á Húsavík
19.06.2017
Tilkynningar
Um er að ræða tvær tímabundnar stöður vegna leyfa og forfalla.
Afleysingarstaða 100% starf, næsta skólaár og 100% afleysingarstaða til áramóta.
Við leitum að kennara sem:
- treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
- hefur lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum
- er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni
- er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði.
Borgarhólsskóli er tæplega 300 barna skóli á Húsavík. Þar fer fram metnaðarfullt skólastarf og áhersla er lögð á jákvæð samskipti og samveru. Skólasýn, stefnu skólans og fleiri upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans http://www.borgarholsskoli.is
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 28. júní 2017
Umsóknum skal skila í tölvupósti á netfangið threyk@borgarholsskoli.is
Ferilskrá skal fylgja umsókn sem og afrit af prófskírteinum.