Fara í efni

Halló! Allir fullorðnir!

Íþróttanefnd fullorðinna félagsmanna (ÍFF) innan HSÞ hvetur eldri félaga og aðra fullorðna á öllum aldri, sem búa á héraðssvæði HSÞ, til að stunda reglulega hreyfingu.

Þekkt staðreynd er að regluleg hreyfing og iðkun íþrótta hefur mjög góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu fólks.  ÍFF hefur tekið saman lista yfir þá hreyfimöguleika sem eru í boði í þinni heimabyggð og hægt að finna sér hreyfingu við hæfi og áhuga.

Fyrir áhugasama um þátttöku á Landsmóti UMFÍ 50+ þá verður það haldið snemma sumars í Hveragerði 2017.  Meira um það síðar.

Hreyfing er gulls ígildi  -  aldrei of seint að byrja!

HÚSAVÍK:

Íþróttahöllin:
Boccia Félags eldri borgara á mánud. kl. 12:00-16:30 og miðvid. kl.10-16
Blak Mánud. kl.19:30-22:00 miðvikud. kl.19:00-22:00
Metabolie Í umsón íþróttakennaranna Unnars Garðars og Áslaugar.  Mánud. kl. 21:10 Þriðjud. kl.19:10.  Miðv.d. kl. 06:10 og kl.12:00.  Fös.d. kl. 6:10 og laugard. kl. 9:00
Zúmba í umsjón Jóhönnu Svövu. Þriðjud. og fimmtud. kl. 18:10

Sundlaug Húsavíkur:     Sund er góð alhliða hreyfing fyrir alla!
Opin alla virka daga 6:45-9:30 og 14:30-21:00. laug. og sunnud. kl 10:00-18:00.
Sundleikfimi í umsón Hrefnu Regínu, mánud og miðvikud. kl. 12:00-13:00 og þriðjud og fimmtud. kl. 20:45 -22:00

Töff heilsurækt:
Opið alla virka daga 06:00-20:00. laugard 09:00-14:00 og sunnudaga 10:00-14:00.

Miðhvammur:
Tækjasalur, umsjón Hrefna Regína sjúkraþjálfari. þriðjud og fimmtud kl.12:00-13:00.
Leikfimi í umsjón Björgu sjúkraþjálfara mánud. kl. 17:00
Leikfimi í umsjón Brynju sjúkraþjálfara fimmtu. kl. 17:00
Félagsvist á miðvikud. kl. 20:00

Snæland:
Opið hús. mánud, þriðjud og miðvikud kl. 13:00-16:00
Bridds fimmtud. kl. 13:00.

Íþróttavöllurinn: Gengið alla fimmtudaga kl. 10:00 f. 60+ og alla hina líka.

Hlaupahópurinn Skokki:   Æfingar eru á mánud. kl.18:00 á Húsavíkurvelli,  en mætt við sundlaugina á fimmtud. kl.18.00 og á laugard. kl.10:00.

Reykjaheiðin: Fínt að fara á gönguskíði þegar færi og veður leyfa.

Kundalini jóga 1x í viku í Hvalasafninu á miðv.d. kl. 17:30 – 19:30.  Jógakennari er Huld Hafliðadóttir, gsm:  698-0489

 

KÓPASKER / Lundur:

Íþróttahúsið á Kópaskeri:   upplýsingar um opnunartíma í síma 465-2180

Opið hús; 67 ára og eldri:  í íþróttahúsinu á föstud. milli 10:00 – 12:00 og er m.a. farið í leikfimi undir leiðsögn sjúkraþjálfara.  Einnig er slík leikfimi í boði á miðv.d. í Stórumörk.  Áhugasamir hafi samband við Hólmfríði Halldórsdóttur í s: 465-2157 eða 864-2157.

Blakæfingar: í Íþróttahúsinu 2x í viku í umsjón Björns Halldórssonar, s: 465-2217, 863-2217

Gönguferðir:  Ferðafélagið Norðurslóð er mjög lifandi félagsskapur og býður upp á ýmsar gönguferðir – sjá nánar á fésbókarsíðu þeirra; „Ferðafélagið Norðurslóð“

Sundlaug og íþróttahús í Lundi:   nánari upplýsingar í síma 465-2244

Leikfimi í íþróttasalnum: þrek og þol fyrir fullorðna 2x í viku á þri.d. og fim.d. kl. 20:00.  Áhugasamir hafi samband við Magneu Dröfn s: 849-4033

 

RAUFARHÖFN:

Íþróttamiðstöð:   Upplýsingar um onunartíma í síma 465-1144.  Hægt að fara í vel útbúinn tækjasal og æfa sund í innisundlaug.  Sund er góð alhliða hreyfing fyrir alla!

Hreyfihópur eldri borgara:   góður hópur einstaklinga hafa tekið sig saman og stunda reglulega alls konar hreyfingu, m.a. útigöngu þegar viðrar vel - annars innigöngu og æfingar inni í íþr.húsi með hjálp sjúkraþjálfara.  Alla virka daga kl. 12:45 – 13:30.   Allir fullorðnir velkomnir!  

Skoða sem pdf-skjal