Fara í efni

Hljóðupptaka á 61. fundi sveitarstjórnar

Ágætu íbúar og aðrir áhugamenn um málefni í Norðurþingi.

 

Vegna tæknilegra vandamála vistaðist upptaka 61. fundar sveitarstjórnar sem haldinn var þann 18. október sl. ekki inn á síðu Norðurþings eins og hún á að gera.  Fundin hefur verið lausn á því vandamáli sem upp kom og því verða upptökur af fundum vonandi aðgengilegar eins og þær eiga að vera, á vef Norðurþings undir hljóðupptökum.   Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda íbúum en vonumst til að tæknin stríði okkur ekki með þessum hætti í framtíðinni.