Fara í efni

Hrina nýbygginga hafin á Húsavík?

Nú nýverið hefur verið úthlutað lóðum undir þrjú einbýlishús hér á Húsavík, en þess má geta að síðast var hér hafin bygging íbúðarhúss árið 2000.

Nú nýverið hefur verið úthlutað lóðum undir þrjú einbýlishús hér á Húsavík, en þess má geta að síðast var hér hafin bygging íbúðarhúss árið 2000.

Meðal þeirra sem fengu úthlutað lóð eru Jónas Gestsson og Helga Kristinsdóttir og bíða þau ekki boðanna heldur hafa þegar hafið framkvæmdir en lóðaúthlutunin þeirra var staðfest í bæjarstjórn s.l. þriðjudag og hófust jarðvegsframkvæmdir á lóðinni í gær, uppstigningardag. Ástæða er til þess að gleðjast yfir þessu framtaki Jónasar og Helgu og óska þeim gæfu og gengis við framkvæmdirnar.