Íbúafundir á Húsavík og Kópaskeri
30.10.2012
Tilkynningar
Sýslumaðurinn á Húsavík, almannavarnanefnd Þingeyinga, Viðlagatrygging Íslands, Veðurstofa Íslands og almannavarnadeild
ríkislögreglustjórans boða til íbúafunda vegna skjálftavirkni á Norðurlandi. Fundirnir verða þriðjudaginn 30. október.
Á Húsavík verður fundurinn kl 17:30 á Fosshóteli, Ketilsbraut 22 og á Kópaskeri verður fundur kl 21:00 á Skjálftasetrinu
Akurgerði 6.