Íbúafundir í umdæmi sýslumannsins á Húsavík
18.09.2012
Tilkynningar
Íbúafundir verða haldnir í umdæmi sýslumannsins á Húsavík vegna afleiðinga óveðursins síðustu daga.
Fundirnir fara fram miðvikudaginn 19. september sem hér segir:
- Skjólbrekka í Mývatnssveit kl. 10:00
- Ýdalir í Aðaldal kl. 13:30
- Stórutjarnarskóli í Ljósavatnsskarði kl. 17:00
Gert er ráð fyrir að þátttakendur frá höfuðborgarsvæðinu geti flogið samdægurs til og frá Akureyri.
Sýslumaðurinn á Húsavík