Fara í efni

Íbúafundur á Raufarhöfn

Íbúafundur verður haldinn í félagsheimilinu á Raufarhöfn mánudaginn 10. desember kl. 17:30.

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að verkefni um framtíð Raufarhafnar á vegum Norðurþings, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, Byggðastofnunar og Íbúasamtaka Raufarhafnar. Markmið verkefnisins er að styrkja stöðu byggðar á Raufarhöfn.

Á fundinum verður sagt frá þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram, niðurstöðum íbúafundar í október s.l. og rætt um framhald verkefnisins. Kynnt verður hvernig standa á að íbúaþingi sem halda á í ársbyrjun 2013.

 

Mikilvægt er að sem flestir mæti.  Boðið verður upp á kaffi og létt meðlæti.