Íbúar Norðurþings orðnir 3.000 talsins
04.07.2017
Tilkynningar
Íbúar Norðurþings eru nú orðnir þrjú þúsund talsins. Þegar þau Sveinbjörn Árni Lund og Tinna Ósk Óskarsdóttir eignuðust sinn annan son þann 19. maí síðastliðinn náðu íbúar Norðurþings þessum áfanga.
Í tilefni þessara tímamóta færði Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri fjölskyldunni örlítinn viðurkenningarvott frá sveitarfélaginu.
Það er ósk sveitarfélagsins að gæfan fylgi drengnum, sem enn hefur ekki fengið nafn og foreldrum hans um ókomna framtíð og að vel takist til við þjónustu við fjölskylduna, sem og aðra íbúa Norðurþings, hér eftir sem hingað til.