Fara í efni

Iðjuver á Bakka - kynningarfundur

Bæjarstjóri Norðurþings boðar til opins kynningarfundar um atvinnumál, föstudaginn 8. mars n.k. Fundurinn verður á Sölku kl. 12:00 til 13:00.

Gert verður grein fyrir stöðu mála er varðar iðjuver á Bakka og stöðu mála í samningum við þýska fyrirtækið PCC og ríkisvaldið. Farið verður yfir greinargerð Byggðastofnunar og þau heimildarlög sem nú liggja fyrir Alþingi og lúta að aðkomu stjórnvalda að uppbyggingu innviða sem tengjast fyrirhuguðum framkvæmdum.

Boðið verður upp á súpu og brauð.

Allir sem áhuga hafa eru hjartanlega velkomnir. 

Virðingarfyllst,

Bergur Elías Ágústsson
Bæjarstjóri Norðurþings