Jarðvegsvinna við Grundargarð
22.10.2020
Tilkynningar
Síðustu vikur hefur verið unnið við jarðvegsframkvæmdir við Grundargarð og þar sem svæðið er mýrarsvæði þá hefur hlotist óþægindi fyrir íbúa og vegfarendur vegna drullu sem dottið hefur af bílum og borist um svæðið.
Beðist er innilega afsökunar á þessum óþægindum og truflun sem þetta hefur valdið. Reynt er eftir mesta mætti að hreinsa upp daglega það sem fellur af. Reiknað með að þessum jarðvegsvinnu verði lokið í endann á næstu viku.