Fara í efni

Kirkjur Íslands

Í tilefni þess að út eru komin tvö ný bindi – hið tuttugasta og fyrsta og tuttugasta og annað – í ritröðinni Kirkjur Íslands býður Þjóðminjasafn Íslands, Minjastofnun Íslands, Biskupsstofa og Hið íslenska bókmenntafélag til málstofu og opnunar sýningar í Safnahúsinu á Húsavík sunnudaginn 9. júní kl. 11.00.

Friðaðar kirkjur í Þingeyjarprófastsdæmi.

  1. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og ritstjóri:

Kirkjur Íslands.

  1. Hjörleifur Stefánsson arkitekt:

Friðaðar kirkjur í Þingeyjarprófastsdæmi.

  1. Sverrir Haraldsson kennari og sagnfræðingur:

Nokkrir gripir, fornir og nýir, í níu kirkjum í Þingeyjarprófastsdæmi.

  1. Björn Ingólfsson rithöfundur og fræðimaður:

Nokkrir gripir, fornir og nýir, í fimm kirkjum í Þingeyjarprófastsdæmi.

Að erindum loknum mun séra Jón Ármann Gíslason prófastur opna sýningu um kirkjur, gripi og minningarmörk sem byggir á ritverkinu.

Fundarstjóri er Sigrún Kristjánsdóttir fyrrverandi forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga.

Málstofan verður endurtekin á Snartarstöðum kl. 15.00 þá um daginn.

Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru vandaðar og glæsilegar bækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 28 bindi og útgáfunni ljúki 2016.

Að útgáfunni standa Þjóðminjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.