Kjósum um jólatré Húsavíkur 2021 - framlengt til 21. nóvember
16.11.2021
Tilkynningar
Í dag hefst kosning um jólatré Húsavíkur árið 2021 og mun kosningin standa út sunnudaginn 21. nóvember.
Tilnefnd voru 4 glæsileg tré. Endilega takið þátt og velja það tré sem þið teljið að sómi sér best sem jólatré Húsavíkur 2021.
Við hvetjum íbúa til að gera sér glaðan dag, rölta um bæinn og skoða tréin sem eru tilnefnd en á sama tíma viljum við benda á að tréin eru í einkagörðum og bera þarf virðingu fyrir eigum og friðhelgi eigenda.
Ef einhverjar spurningar eru vegna þessa vinsamlega hafið samband við umhverfisstjóra Norðurþings í síma 464-6100 eða á netfangið smari@nordurthing.is
Kosning fer fram hér og notast þarf við rafræn skilríki