Fara í efni

Kvennahlaupið fer fram á laugardaginn

Kvennahlaupið fer fram laugardaginn 4. júní. Hlaupið verður á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn ásamt yfir 100 öðrum stöðum hérlendis og erlendis. Hreyfing er lykillinn að góðri heilsu og nærir líkama og sál. Við hvetjum því allar konur til að mæta í Kvennahlaupið og njóta þess að hreyfa sig, hver á sínum hraða og forsendum.

Húsavík- hlaupið hefst klukkan 11:00 við sundlaug Húsavíkur. Í boði verður bæði 2,5 km og 5 km hringur. Að loknu hlaupi er þátttakendum boðið í sund. 

Kópasker- hlaupið hefst kl 11:00 við Heilsugæsluna á Kópaskeri. Í boði verður bæði 2,5 km og 5 km hringur.

Raufarhöfn- hlaupið hefst kl 11:00 hjá íþróttamiðstöðinni við Skólabraut. Vegalengdir í boði 3km, 5km og 7km. Frítt í sund að loknu hlaupi.

Frekari upplýsingar um hlaupið og hlaupastaði má nálgast HÉR.