Kynning á drögum að deiliskipulagi Útgarðs og Pálsgarðs á Húsavík
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur ákveðið að kynna drög að deiliskipulagi hluta Miðbæjarsvæðis 7 á Húsavík eins og það er skilgreint í Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030. Svæðið sem um ræðir afmarkast af Ketilsbraut í vestri, Útgarði í norðri, Auðbrekku í austri og Pálsgarði í suðri. Í gildi er deiliskipulag fyrir lóðina Útgarð 4 sem fellt er undir fyrirhugað nýtt og stærra skipulagssvæði. Helstu nýmæli skipulagstillögunnar felast í því að heimila uppbyggingu þriggja hæða íbúðarhúss á lóðinni að Útgarði 2, en það er eina óbyggða lóð svæðisins.
Vegna smitvarna verða skipulagstillögurnar eingöngu kynntar hér á vef Norðurþings. Þeim sem óska frekari upplýsinga um fyrirliggjandi skipulagsdrög er bent á að senda fyrirspurnir á skipulagsfulltrúa á póstfangið gaukur@nordurthing.is eða fá samband við skipulagsfulltrúa í síma 464 6100.
Skipulagshugmyndirnar verða aðgengilegar á vefsíðu Norðurþings 7. til 14. janúar 2021. Þeir sem óska eftir að koma sjónarmiðum á framfæri vegna skipulagsvinnunnarar er bent á að koma þeim til undirritaðs eigi síðar en í lok dags 14. janúar 2021 í tölvupósti eða bréflega. Ætla má að formleg tillaga að deiliskipulaginu verði kynnt nánar skv. ákvæðum skipulagslaga í febrúar og mars 2021.