Fara í efni

Kynning skipulags- og matslýsingar vegna breytingar aðalskipulags Norðurþings og kynningarfundur

Bæjarráð Norðurþings, að tillögum skipulags- og byggingarnefndar og framkvæmda- og hafnanefndar, samþykkti á fundi sínum þann 21. ágúst 2014 að kynna skipulags- og matslýsingu skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030.

 Fyrirhuguð breyting fælist í um 2 ha uppfyllingu í norðurhöfn Húsavíkur sem nýtt yrði sem byggingarlóðir og athafnasvæði við höfn.

 

Skipulags- og matslýsing þessi er nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings (www.nordurthing.is). Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsinguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 1. október 2014.  Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (gaukur@nordurthing.is).

 

Ennfremur er boðað til kynningarfundar skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga á tillögu um ofangreinda breytingu aðalskipulags ásamt tilheyrandi umhverfisskýrslu á opnu húsi í fundarsal bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, þriðjudaginn 9. september n.k. milli kl. 13 og 16. 

 

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi