Fara í efni

Kynningar á skipulags- og matslýsingum í Norðurþingi

Bæjarstjórn Norðurþings, að tillögum skipulags- og byggingarnefndar, samþykkti á fundi sínum þann 17. september 2013 að kynna eftirfarandi skipulags- og matslýsingar skv. ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010:

 

  1. Skipulags- og matslýsingu breytingar aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 vegna færslu háspennumannvirkja að og á iðnaðarsvæði á Bakka.  Fyrirhuguð aðalskipulagsbreyting felur í sér tilfærslu á spennivirki raforku innan iðnaðarsvæðis til suðurs og austurs frá því sem gert er ráð fyrir í gildandi aðalskipulagi.  Það kallar á breytta legu háspennulína að svæðinu á um 5 km kafla austur af nýrri staðsetningu spennivirkisins.  Ennfremur verður breytt lega Tjörneslínu (11 kV) í jarðstreng um veghelgunarsvæði innan iðnaðarsvæðis færð inn á aðalskipulagsuppdrátt.
  2. Skipulags- og matslýsingu fyrir breytingar aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 vegna stækkunar sorpurðunarsvæðis við Kópasker.
  3. Skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 sem heimili lagningu 66 kV jarðstrengs meðfram Reykjaheiðarvegi frá Húsavík að Höfuðreiðarmúla.
  4. Skipulagslýsingu fyrir breytingu aðalskipulags vegna fyrirhugaðrar stækkunar þjónustusvæðis við golfvöllinn á Húsavík og deiliskipulags þess svæðis undir golfskála og hótelbyggingar.

 

Skipulags- og matslýsingar þessar eru nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings (www.nordurthing.is). Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsingarnar er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 7. október 2013.  Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (gaukur@nordurthing.is).

 

Ennfremur er boðað til kynningar á tillögu um breytingu aðalskipulags vegna háspennumannvirkja á Bakka og tilheyrandi umhverfisskýrslu á opnu húsi í fundarsal bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, miðvikudaginn 25. september milli kl. 13 og 16.

 

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi