Laus kennarastaða við Öxarfjarðarskóla
03.06.2024
Tilkynningar
Leitað er eftir umsjónarkennara í teymi á mið- og unglingastigi í 100% stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjónarkennsla í teymi
- Unnið skv skólastefnu Norðurþings Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
- Áhugi á að starfa með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Ábyrgð og stundvísi
- Vammleysi
Umsóknarfrestur er til 14.júní og skulu umsóknir sendar ásamt ferilskrá og meðmælendalista til skólastjóra á netfangið hrund@oxarfjardarskoli.is.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð. Allar frekari upplýsingar um störfin veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 4652246 og netfangið hrund@oxarfjardarskoli.is