Fara í efni

Laus staða á Bókasafni Öxarfjarðar

Norðurþing óskar eftir bókaverði við bókasafn Öxarfjarðar á Kópaskeri.
Um er að ræða 20% starfshlutfall. Starfsmaðurinn þarf að geta hafið störf 20. janúar 2025.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Starfssvið og helstu verkefni:
• Afgreiðsla og þjónusta við notendur bókasafnsins.
• Aðstoð við upplýsinga- og heimildaleit.
• Umsjón með samfélagsmiðlum.
• Skráning og flokkun í bókasafnskerfinu „Alma“.
• Umsjón með barnastarfi og viðburðum

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti,
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er mikilvægt.
• Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Víðtæk reynsla í tölvunotkun.

Norðurþing er sveitarfélag á Norðausturlandi sem varð til árið 2006 við sameiningu Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps. Norðurþing er víðfemt sveitarfélag og þéttbýliskjarnar eru þrír í sveitarfélaginu; Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Auk þess eru sveitirnar Reykjahverfi, Kelduhverfi, Núpasveit og Öxarfjörður. Íbúar eru um 3.200 talsins.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið.
Umsóknir óskast sendar í netfangið: nele@nordurthing.is
Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2024.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um starfið hjá Nele Marie Beitelstein, Fjöllmeninngarfulltrúi Norðurþing á netfangið nele@nordurthing.is eða Bryndísi Sigurðardóttur, Deildarstjóri Bokasafn Norðurþings, á netfangið bokhus@nordurthing.is