Fara í efni

Laus störf í Borgarhólsskóla

Frá  20. ágúst er laust 50% starf forstöðumanns skólasels við Borgarhólsskóla.  Forstöðumaður annast daglega stjórnun og stefnumótun skólaselsins í umboði skólastjóra. Einnig er laust allt að 40% starf þroskaþjálfa við Borgarhólsskóla frá 1. ágúst.

Frá  20. ágúst er laust 50% starf forstöðumanns skólasels við Borgarhólsskóla.  Forstöðumaður annast daglega stjórnun og stefnumótun skólaselsins í umboði skólastjóra.

Einnig er laust allt að 40% starf þroskaþjálfa við Borgarhólsskóla frá 1. ágúst.

Nemendur 1.-4. bekkjar og fatlaðir nemendur á grunnskólaaldri eiga rétt á þjónustu í skólaseli og því er m.a.  leitað eftir umsækjanda með uppeldismenntun,  reynslu og sérþekkingu af starfi með fötluðum nemendum.

Skólaselið starfar frá því skóla lýkur á daginn og virka daga frá skólasetningu til skólaslita.

Laun fyrir störfin eru samkvæmt launakerfi sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Valdimarsson skólastjóri sími: 464-6141, netfang: hvald@borgarholsskoli.is  og skal umsóknum skilað til undirritaðs fyrir 25. apríl   á eyðublöðum sem nálgast má hér.

 

Skólastjóri