Laus sumarstörf við sundlaugina í Lundi í Öxarfirði
02.05.2023
Tilkynningar
Norðurþing auglýsir eftir sumarstarfsfólki við sundlaugina í Lundi í Öxarfirði
Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf eftir samkomulagi.
Laugin er opin frá byrjun júní og út ágúst.
Starfið felst m.a. í
- móttöku og vöktun laugar
- afgreiðslustörfum
- þrifum lóðar og laugar
Hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að vera heilsuhraustur og þarf að standast hæfnipróf sundstað
- búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og góðri þjónustulund.
- hreint sakavottorð skv ákvæði æskulýðslaga
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2023
Nánari upplýsingar gefur Kjartan Páll Þórarinsson í gegnum netfangið kjartan@nordurthing.is eða síma 464-6100