Lausar kennarastöður við grunnskóla Norðurþings
Öxarfjarðarskóli - er heildstæður samrekinn leik- og grunnskóli með um alls 40 nemendur.
Við leitum eftir smíðakennara sem er tilbúinn að taka þátt í þróun skólastarfs með öðrum starfsmönnum skólans. Við erum að innleiða uppeldisstefnuna Jákvæður agi.
Við leggjum áherslu á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, samvinnu og vellíðan starfsfólks og nemenda.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún S. Kristjánsdóttir skólastjóri.
Sími 4652246/8925226 eða á netfangið gudrunsk@oxarfjardarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2017
Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn grunn- og leikskóli með alls um 20 nemendur þar sem verið er að innleiða uppeldisstefnuna Jákvæður agi. Skólinn nýtur mikils stuðnings frá samfélaginu og leggjum við áherslu á samvinnu, sveigjanleika sem og jákvæðni. Skólinn er í samvinnu við Rif rannsóknarstöð þar sem unnið er að ýmsum verkefnum tengdum náttúrunni.
Við leitum að áhugasömum, fjölhæfum og jákvæðum kennara í bekkjarkennslu á yngsta stigi. Þekking á Byrjendalæsi er mikilvæg.
Frekari upplýsingar veitir Birna Björnsdóttir skólastjóri í síma 464-9870 og 893-4698 og á netfangið birna@raufarhafnarskoli.is.
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2017
Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi
og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.