Lausar kennarastöður við Öxarfjarðarskóla
Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli með alls 60 nemendur, þar af 34 í grunnskóladeild. Leikskóladeild skólans er innahúss í grunnskólanum. Starfað er í anda Jákvæðs aga og verið að innleiða teymisvinnu og teymiskennslu í skólanum í samstarfi við MSHA. Um er að ræða samkennslu árganga í þremur deildum; yngri (1.-4.b), mið-(5.-7.b) og unglingadeild (8. - 10.b)
Leitað er eftir tveimur umsjónarkennurum í teymi á mið- og unglingastigi í 100% stöður, umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% stöðu og íþrótta- og sundkennara í 40% stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Umsjónarkennsla í teymi
• Íþrótta-og sundkennsla
• Unnið skv skólastefnu Norðurþings
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg
• Áhugi á að starfa með börnum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Ábyrgð og stundvísi
• Vammleysi
Umsóknarfrestur er til 17. maí og skulu umsóknir sendar ásamt ferilskrá og meðmælendalista til skólastjóra á netfangið hrund@nordurthing.is. Gerð er krafa um hreint sakavottorð. Allar frekari upplýsingar um störfin veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri í gegnum netfangið hrund@oxarfjardarskoli.is