Fara í efni

Lausar stöður við Borgarhólsskóla á Húsavík

Auglýst eru laus til umsóknar eftirtalin störf við Borgarhólsskóla: Kennari á unglingastigi, myndmenntakennari, þroskaþjálfi og stuðningsfulltrúi.

Borgarhólsskóli er tæplega 300 barna skóli á Húsavík. Þar fer fram metnaðarfullt skólastarf og áhersla er lögð á jákvæð samskipti og samveru. Unnið er að ýmsum áhugaverðum þróunarverkefnum og innleiðingu uppeldisstefnunnar Jákvæður agi. Skólasýn, stefnu skólans og fleiri upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans http://www.borgarholsskoli.is

Við leitum að starfsfólki sem:
• hefur áhuga á kennslu og vinnu með börnum
• treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
• hefur lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum
• er sveigjanlegt
• er sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir eða býr yfir frumkvæði
• hefur jákvæðni og starfsgleði að leiðarljósi.
Umsækjendur verða einnig að:
• vera skipulagðir, stundvísir, heilsuhraustir og snyrtilegir í umgengni
• hafa færni til jákvæðra samskipta við nemendur, foreldra og samstarfsfólk

Grunnskólakennari
Óskum eftir að ráða grunnskólakennara í fullt starf á unglingastigi grunnskólans. Um framtíðarstarf getur verið að ræða. Umsækjendur þurfa að hafa grunnskólakennaramenntun og öll framhaldsmenntun er kostur.

Myndmenntakennari
Óskum einnig eftir kennara í afleysingar í myndmenntakennslu frá 1. október 2013 til 31.júlí 2014.

Þroskaþjálfi óskast
Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa í 80-100% starf.  Umsækjendur þurfa að hafa lokið þroskaþjálfanámi.  Við leitum eftir öflugri fagmanneskju til að starfa með nemendum á yngsta og miðstigi í skóla margbreytileikans við hin ýmsu verkefni.
Í starfinu felst m.a.
  • skipulag á kennslu
  • skipulag á þjálfun
  • aðstoða við athafnir daglegs lífs
  • aðstoða við félagslega þátttöku.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið verður frá 19. ágúst 2013.

Stuðningsfulltrúi
Lausar eru til umsóknar tvær stöður stuðningsfulltrúa, 60-80% starfshlutfall.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið verður frá 19. ágúst 2013.

Umsóknarfrestur um öll störfin er til 23. maí 2013

Umsóknum skal skila í tölvupósti á netfangið threyk@borgarholsskoli.is
Ferilskrá skal fylgja umsókn sem og afrit af prófskírteinum.
Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá skólastjóra Þórgunni R. Vigfúsdóttur í síma 4646140.