Laust starf framkvæmdastjóra Samtaka atvinnuþróunar og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra
18.12.2019
Tilkynningar
Samtök atvinnuþróunar og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra óska eftir að ráða drífandi einstakling í starf framkvæmdastjóra.
Um er að ræða nýtt og spennandi starf sem gefur réttum aðila tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun á svæðinu. Starfsstöðvar félagsins verða á fjórum stöðum: Húsavík, Akureyri, Tröllaskaga og Norður Þingeyjarsýslum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Ráðið er í starfið til fimm ára.
Starfssvið:
-
Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun samtakanna.
-
Skipulagning og verkefnastýring.
-
Stefnumótunarvinna.
-
Samskipti og samstarf við hagaðila (atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög, opinberar stofnanir og aðra hagaðila).
-
Önnur verkefni í samráði við stjórn.
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Háskólapróf sem nýtist í starfi.
-
Forystu- og leiðtogahæfileikar.
-
Reynsla af rekstri og stjórnun skilyrði.
-
Reynsla af mótun stefnu og innleiðingu hennar æskileg.
-
Þekking og reynsla af atvinnu-, menningar- og byggðamálum kostur.
-
Góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.
-
Frumkvæði, hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna sjálfstætt og í hóp.
-
Gott vald á tjáningu í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði.
Umsóknarfrestur
6. janúar
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/15340