Laust starf - Sambýlið Pálsgarður
Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir áhugasömum starfsmanni á sambýlið Pálsgarð
Markmið starfsins: Góð umönnun, virðing og vinsemd. Fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan íbúa.
Veita íbúum félagslegan stuðning og aðstoð við almenn störf á heimilum íbúa svo sem þrif og matseld. Stuðningur til sjálfshjálpar, samfélagslegrar þátttöku og almennrar virkni. Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
Hæfniskröfur: Áhugi á að starfa með fötluðu fólki með umhyggju og virðingu að leiðarljósi. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.
Jákvæðni, þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði.
Starfshlutfall: 70 - 100%
Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli III
Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn samkvæmt vaktaskýrslu sem lögð er fram með sex vikna fyrirvara og samkvæmt samkomulagi við yfirmann. ( Einnig er hægt að bera fram séróskir ).
Áhugasamir hafi samband við