Fara í efni

Leikhópurinn Umskiptingar í Norðurþingi

Leikhópurinn Umskiptingar verður í Norðurþingi næstkomandi laugardag og sýnir verkið Í myrkri eru allir kettir gráir.

Um er að ræða tvíleik, eða tvo 50 mínútna einleiki, sem sýndir eru með hléi á milli.

Verkin eru að mörgu leyti ólík en fjalla þó bæði í grunninn um mennskuna og hvernig fólk glímir á ólíkan hátt við áföll.
Fyrra verkið heitir Heimþrá og fjallar um Öldu, sem vinnur að lokaritgerð sinni til meistaragráðu í HA og tekur viðtöl við flóttamenn. Einn þeirra lánar henni stílabók með frásögnum samlanda sinna úr flóttamannabúðunum og smám saman vekja þær hjá Öldu viljann til að vinna sig út úr eigin missi.
Seinna verkið heitir Líf og fjallar um Sissu, sem er tónlistarkona af lífi og sál. Hún hefur óbilandi trú á eigin ágæti en finnst hún ekki alltaf njóta sannmælis í listaheiminum, þar sem klíkuskapurinn ræður ríkjum. Eftir eins sumars frægð á unglingsárunum og vinsælan einsmellung dreymir hana um meira. Svo miklu meira. En lífið þvælist fyrir henni og áframhaldandi frægð lætur bíða lengi eftir sér. En Sissa gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana og loksins, einn góðan veðurdag, springur allt út.

Tvær sýningar verða í Norðurþingi á laugardaginn.

Kl.14:00 í Skjálftasetrinu á Kópaskeri og kl. 20:00 í Samkomuhúsinu á Húsavík

Miðaverð eru 3800 kr. og hægt er að panta á umskiptingar@gmail.com og borga við hurð eða leggja inn á reikning okkar 0302-26-501019 kt.501019-0110.

Afsláttuer er fyrir nemendur, eldri borgara, öryrkja og hópa (10 eða fleiri saman), en miðaverð fyrir þau eru 3200 kr.

Hér eru frekari upplýsingar um verkið
https://www.kaffid.is/i-myrkri-eru-allir-kettir-grair-synt-i-hlodunni/