Leikskólakennarar eða annað starfsfólk óskast í leikskólann Grænuvelli
Leikskólakennarar eða annað starfsfólk óskast
Leikskólinn Grænuvellir auglýsir eftir tveimur kennurum með leyfisbréf til kennslu eða starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Störfin henta hvaða kyni sem er.
Um er að ræða tvær 100% framtíðarstöður, vinnutími 8:00-16:15.
Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 150 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla og leikur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg
- Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og reglusemi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem allra fyrst. Þeir sem hafa eldri umsóknir og hafa áhuga á að sækja um eru beiðnir um að endurnýja umsóknir og senda á netfang aðstoðarleikskólastjóra.
Sótt er um á heimasíðu leikskólans, graenuvellir.karellen.is
Umsóknarfrestur er til og með 29. október 2022
Allar frekari upplýsingar veitir Helga Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 464-6158 eða á netfangið helgaj@graenuvellir.is