Leikskólakennarar eða annað starfsfólk óskast í leikskólann Grænuvelli
Leikskólinn Grænuvellir á Húsavík auglýsir tvær stöður kennara lausar til umsóknar. Einnig verða skoðaðar umsóknir frá starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Störfin henta hvaða kyni sem er.
Um er að ræða tvær 100% framtíðarstöður, vinnutími 8:00-16:15.
Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 154 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a leikur, læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla, STEM og tónlist.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga Framsýn og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg
- Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, reglusemi og vammleysi á samfélagsmiðlum
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf um miðjan mars og byrjun apríl. Þeir sem hafa eldri umsóknir og hafa áhuga á að sækja um eru beiðnir um að endurnýja umsóknir.
Sótt er um á heimasíðu leikskólans, graenuvellir.karellen.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2023.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir í síma 464-6160 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is