Fara í efni

Leikskólakennarar óskast

Leikskólinn Grænuvellir auglýsir eftir kennurum með leyfisbréf til kennslu og öðru starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Störfin henta hvaða kyni sem er.

Um er að ræða eina 100% stöðu í afleysingar, eina 50% stöðu inn á deild með vinnutímann 12:15-16:15 og auk þess tvær 28% stöður með vinnutímann 14:00-16.15.

Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 151 barn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a  læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla og leikur.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og reglusemi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslensku kunnátta skilyrði

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Þeir sem hafa eldri umsóknir og hafa áhuga á að sækja um eru beiðnir um að endurnýja umsóknir og senda á netfang leikskólastjóra.

Sótt er um á graenuvellir.karellen.is og mikilvægt er að ferilskrá og meðmælendur fylgi með.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2022.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri í síma 464-6157 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is

Heimasíða leikskólans er graenuvellir.karellen.is