Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Grænuvelli á Húsavík
Leikskólinn starfar eftir lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla og námskrá Grænuvalla. Starfið byggir einnig að miklu leyti á hugmyndafræði John Dewey. Verið er að innleiða Jákvæðan aga og stefnt er að námsferð til Ameríku vor 2016. Áherslur í starfi Grænuvalla eru meðal annars: Virðing og vellíðan með áherslu á næringu, hreyfingu, leikgleði og lífsleikni, Betri grunnur-bjartari framtíð; snemmtæk íhlutun vegna hreyfiþroska barna, frjáls leikur, Markviss málörvun, TMT, tónlist og útikennsla. Leikskólinn tekur þátt í þróunarverkefninu CRISTAL sem snýr að sjálfbærni, tækni og starfsþróun. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og nær til næstu 3 ára.
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu leikskólans: graenuvellir.nordurthing.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólanemenda samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra. Möguleiki er á að gegna 25% deildastjórastöðu.
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun
Færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Reynsla af einhverjum af upptöldum áhersluþáttum í starfi leikskólans.
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands v/ Félags leikskólakennara
Starfshlutfall 100%
Umsóknarfrestur 01.12.15
Upphaf starfs 04.01.2016
Ráðningarform Ótímabundin ráðning
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri í síma 464-6160/ 464-6157 eða með því að senda fyrirspurn á siggavaldis@nordurthing.is
Leikskólinn Grænuvellir
Iðavellir 1
640 Húsavík