Fara í efni

Leikskólinn Grænuvellir auglýsir eftir deildarstjórum og þroskaþjálfa

Leikskólinn Grænuvellir á Húsavík auglýsir nokkrar stöður kennara lausar til umsóknar.
Um er að ræða þrjár 100% deildarstjórastöður (til greina kemur einnig að ráða frekar kennara á deild), vinnutími 07:45-16:00 og ein staða þroskaþjálfa í 100% starf. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf ekki seinna en 1. september 2024.
Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 164 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, snemmtæk íhlutun, útikennsla, leikur og STEAM. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga og/eða Þroskaþjálfafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Menntunar- og hæfniskröfur:

-Kennaramenntun og leyfisbréf kennara/ Þroskaþjálfamenntun
-Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg.
-Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra.
-Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
-Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
-Stundvísi og reglusemi.
-Hreint sakavottorð.
-Vammleysi.
-Góð íslenskukunnátta.
-Reyk, veip- og tóbakspúðaleysi.

Fríðindi sem fylgja starfinu eru afsláttur og forgangur barna í leikskólann auk þess fríar máltíðir fyrir starfsmanninn.
Sótt er um á heimasíðu leikskólans, graenuvellir.karellen.is Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2024. Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir í síma 464-6160 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is