Fara í efni

Lífshlaupið hefst í dag!

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 1. – 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 1. – 14. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • grunnskólakeppni frá 1. – 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Eins og ávalt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.

Skráning er í fullum gangi og um að gera að taka þátt frá upphafi. Skráningarferlið er einfalt og þægilegt. Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag.

Við óskum eftir liðsinni ykkar við að hvetja vinnustaði, grunnskóla og einstaklinga í kringum ykkur til þátttöku. Við hvetjum ykkur einnig til þess að segja frá Lífshlaupinu á ykkar heimasíðu. Hægt er að fá hnapp hjá ÍSÍ til að setja inn á heimasíðuna sem leiðir áhugasama inn á heimasíðu verkefnisins.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is eða í síma: 514-4000.

 
SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á 
www.lifshlaupid.is