Fara í efni

Ljósin tendruð á bæjarjólatrénu á Húsavík

 

Ljós verða tendruð á bæjarjólatrénu á Húsavík sunnudaginn 27. nóvember kl. 16.00. Jólatréð er svo sannarlega bæjarjólatré þar sem það kemur úr skóglendi bæjarins og er það í fyrsta skipti sem bærinn er sjálfbær í útvegun jólatrjáa, að sögn Smára J. Lúðvíkssonar, garðyrkjustjóra. Önnur jólatré á vegum sveitarfélagsins koma einnig úr þessum skógi.

Dagskrá verður með hefðbundnum hætti.

Stúlkur í 3. flokki Völsungs í knattspyrnu munu sjá um söng. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, mun ávarpa samkomuna og séra Sighvatur Karlsson ætlar að flytja stutta hugvekju. Soroptimistakonur verða á staðnum með kakó og piparkökur. Og sterkar líkur eru á að sveinar ofan af fjöllum mæti á láglendið  og rífi upp stemmninguna.

Það eru iðkendur úr 3. flokki Völsungs í fótbolta sem sjá um hátíðina í ár.