Fara í efni

Ljósin tendruð á jólatrénu á Húsavík

Ljósin voru tendruð á jólatrénu á Húsavík nú undir kvöld og var fjölmenni viðstatt enda milt veður í bænum. Meðal þeirra sem létu sjá sig voru nokkrir jólasveinar sem komu ofan úr Dimmuborgum í Mývatnssveit til að syngja og dansa í kringum jólatréð með börnunum.  

Athöfnin var með venjubundnum hætti, Lúðrasveit Borgarhólsskóla spilaði, skólakór Borgarhólsskóla söng, Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri flutti ávarp og séra Sighvatur Karlsson flutti hugvekju. Þá var Soroptimistaklúbbur Húsavíkur með kakósölu á staðnum eins og undanfarin ár.

Jólatréð að þessu sinni, um sextíu ára gamalt Sitkagreni, er heimafengið og kemur úr garði Guðna Halldórssonar að Laugarbrekku 20.

Skoða myndir