Fara í efni

Ljósmyndasamkeppni Norðurþings

Norðurþing efnir til ljósmyndasamkeppni vegna opnunar á nýjum vef sveitarfélagsins.  Samkeppni verður í eftirfarandi flokkum:  „Æskan og mannlífið", „Náttúran í Norðurþingi" og „Mitt Norðurþing". Veitt verða peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki.

Norðurþing efnir til ljósmyndasamkeppni vegna opnunar á nýjum vef sveitarfélagsins.  Samkeppni verður í eftirfarandi flokkum:  „Æskan og mannlífið", „Náttúran í Norðurþingi" og „Mitt Norðurþing".

Veitt verða peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki.

1. sæti            15.000 kr.
2. sæti            10.000 kr.
3. sæti            5.000 kr.

Þátttakendur skili inn myndum á netfangið danielb@nordurthing.is fyrir 16. september. Myndirnar skulu vera á jpg formi og stærð þeirra skal vera 640 x 480 pixlar. Taka skal fram þann flokk sem myndin tilheyrir ásamt símanúmeri og netfangi þátttakanda.

Fyrir nánari upplýsingar má senda tölvupóst á netfangið danielb@nordurthing.is

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að nota allar myndir sem sendar eru inn í keppnina til birtingar á vefsíðum sínum.