Fara í efni

Ljósmyndir Péturs í 60 ár

Pétur Jónasson, listamaður Norðurþings 2020, opnar ljósmyndasýninguna Ljósmyndir Péturs í 60 ár  föstudaginn 27. ágúst kl. 18:00. Sýningin er í aðalsal Safnahússins á Húsavík og stendur út september.

Sýningin er í boði Norðurþings og listamannsins.

Um leið og við vonumst til að sjá sem flesta biðjum við gesti að virða fjöldatakmarkanir og nálægðarmörk.