Fara í efni

Ljótu hálfvitarnir heita á Völsungsstúlkur

Kvennalið Völsungs frá Húsavík keppir nú í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu, eftir gott gengi í sumar. Fyrri leikur undanúrslita fór fram í gær þegar liðið mætti Aftureldingu í Mosfellsbæ. Fyrir leikinn barst Völsungsstúlkum formlegt áheit frá húsvísku hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum. Áheitið var á þá leið að ef Völsungsstúlkur ynnu sér sæti í Úrvalsdeildinni myndu Hálfvitarnir mæta þeim í knattspyrnuleik ásamt því að halda stórtónleika þeim til heiðurs. Og allur ágóði rynni til Völsungsstúlkna til undirbúnings og þátttöku í Úrvalsdeildinni að ári.

Völsungsstúlkur tóku Hálfvitanna svo sannarlega á orðinu og sigruðu Aftureldingu glæsilega 2-3 og útlitið því gott fyrir síðari leik undanúrslitanna. Hann fer fram á Húsavík á miðvikudaginn og geta Völsungsstúlkur þá tryggt sér sæti í Úrvalsdeildinni að ári.
Eftir góð úrslit gærdagsins hafa Ljótu hálfvitarnir hafið stífar knattspyrnuæfingar og undirbúa sig nú af kappi fyrir að mæta hinu stórgóða kvennaliði Völsungs. Þeir hafa þegar ráðið sér stílista fyrir val á búningum og hæfustu einkaþjálfarar og læknar landsins hafa verið ráðnir í Hálfvitahirðina til að tryggja að undirbúningur verði eins góður og mögulegt er. Ekki liggur fyrir hver mun þjálfa lið Hálfvitanna en nokkur stór nöfn hafa verið orðuð við þessa krefjandi þjálfarastöðu.

Það verður því tvöföld spenna í loftinu á Húsavíkurvelli á miðvikudaginn þegar í ljós kemur hvort kvennalið Völsungs vinni sér sæti í Úrvalsdeildinni að ári og mæti Ljótu hálfvitunum í stórleik á Húsavík.

 Umfjöllun um fyrri leikinn við Aftureldingu