Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands
06.09.2018
Tilkynningar
Á vefsíðu Ferðafélags Íslands má nálgast frekari upplýsingar um verkefnið "Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands".
Norðurþing, sem heilsueflandi samfélag, hvetur íbúa sína til þess að taka þátt í þeim lýðheilsugöngum sem eru í boði.
Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands
Norðurþing, í samvinnu við Ferðafélagið Norðurslóð og Áttavilltar, gönguklúbb kvenna (öll kyn velkomin).
Miðvikudagar í september, allar hefjast göngurnar klukkan 18
- náttúra - vellíðan - saga - vinátta –
Áttavilltar :
Ganga 1
5. september
Mæting við Kvíabekk, í Skrúðgarðinum á Húsavík. Hringur upp með Skógagerðislæknum, gengið að vatnsbólinu. Þar mun Tryggvi Finnsson segja aðeins frá vatninu okkar. Svo verður farið meðfram Búðaránni, endað við Kvíabekk um klukkutíma síðar.
Ganga 2
12. september
Mæting við skotsvæðið við Húsavík, gengið upp á Húsavíkurfjall. Um klukkutíma ganga.
Ganga 3
19. september
Mæting við leikskólann Grænuvelli á Húsavík. Skrúðgarðurinn, stígurinn í fjallinu, í átt að vitanum, niður Höfðaveg og niður á bryggju. Upp Búðarárgilið að leikskólanum á ný. Rúmlega klukkutíma ganga.
Ganga 4
26. september
Mæting við Holt í Reykjahverfi (heima hjá Fanneyju Óskars og Gumma Salla). Genginn um það bil klukkutíma hringur í Hvammsheiðinni við Mýrarkvísl.
Ferðafélagið Norðurslóð:
Þórshöfn:
Alla miðvikudaga í september frá íþróttamiðstöðinni. Lýðheilsuganga á Þórshöfn
Raufarhöfn:
Alla miðvikudaga í september frá rafstöðinni. Lýðheilsugöngur á Raufarhöfn
Kópasker:
Alla miðvikudaga í september frá Skjálftasetrinu. Lýðheilsugöngur á Kópaskeri
Á vefsíðu Ferðafélags Íslands má nálgast frekari upplýsingar um verkefnið "Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands".