Fara í efni

Málþing um Húsavíkurflugvöll í kvöld

Í kvöld klukkan 20.00 verður málþing um flugmál haldið i Hvalasafninu á Húsavík.

 Þar verða einnig stofnuð Hagsmunasamtök Húsavíkurflugvallar, en þeim er ætlað að vinna að vexti vallarins í samvinnu við hagsmunaaðila og standa vörð um flug til Húsavíkur. Á fundinum verður meðal annars farið yfir hvernig flug Ernis hefur gengið og þá verður rætt um framtíðarmöguleika vallarins.