Fara í efni

Matráður - matartæknir í skólamötuneyti

Skólamötuneyti Húsavíkur hóf starfsemi sína 1. ágúst 2020. Mötuneyti leikskólans Grænuvalla og mötuneyti Borgarhólsskóla voru þá sameinuð í eitt. Yfirmatráður rekur mötuneytið sem sérstaka deild innan sveitarfélagsins og er deildarstjóri hennar. Eldað er í vel útbúnu eldhúsi í Borgarhólsskóla, einnig er skólamötuneytið með móttökueldhús á Grænuvöllum. Mötuneytið fylgir ráðleggingum embættis landlæknis um næringu. Stöðugildi við mötuneytið eru samtals 3.75 og eldað er daglega fyrir um 600 nemendur og starfsmenn Borgarhólsskóla og Grænuvalla auk þess sem eldað er fyrir Miðjuna dagþjónustu, Framhaldsskólann á Húsavík og starfsfólk stjórnsýsluhúss.

  • Matráður/matartæknir (100%)

Starfslýsing – Matráður/matartæknir

Leitað er að einstaklingi sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja öflugt og metnaðarfullt skólamötuneyti í samvinnu við yfirmatráð, skólana, starfsfólk, foreldra og nemendur. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur sterka og faglega sýn á starfsemi skólamötuneyta. Matráður mun, undir stjórn yfirmatráðs, hafa umsjón með eldhúsi, sjá um matseld og bakstur, skipuleggja matseðla allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum ásamt því að hafa umsjón með þrifum. Matráður mun bera ábyrgð á fjármunum með öðrum. Gerð er krafa um mikla reynslu á þessu sviði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsreynsla í mötuneytiseldhúsi æskileg
  • Forystuhæfileikar, mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
  • Reynsla af stjórnun í mötuneytiseldhúsi er æskileg
  • Matartækninám/matreiðslunám er æskilegt
  • Ökuréttindi
  • Góð íslensku og enskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2024.

Umsóknum skal skila með tölvupósti til yfirmatráðs Skólamötuneytis Húsavíkur á netfangið mikael@nordurthing.is

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Skólamötuneytisins að Skólagarði 1 á Húsavík og í síma 865-2144 eða með fyrirspurnum á netfangið mikael@nordurthing.is