Fara í efni

Menningarmiðstöð Þingeyinga - Þekkir þú myndina?

Undanfarið hefur Menningarmiðstöð Þingeyinga birt á vef sínum http://www.husmus.is/ myndir af óþekktum einstaklingum með ósk um ábendingar um hverjir væru á myndunum.

Undanfarið hefur Menningarmiðstöð Þingeyinga birt á vef sínum http://www.husmus.is/ myndir af óþekktum einstaklingum með ósk um ábendingar um hverjir væru á myndunum.

Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist og þakkar menningarmiðstöðin kærlega fyrir undirtektirnar.

Nú birtir Menningarmiðstöðin á vefnum nýjan myndabunka, um er að ræða blandaðar myndir þar sem ekki er vitað um hverjir eru á myndunum, hvar þær eru teknar eða hver ljósmyndarinn er. Myndirnar er hægt að skoða á vefsíðunni http://www.husmus.is/ . Eins og áður er hægt að senda ábendingar á skjalasafn@husmus.is eða hringja í síma 464-1860 og tala við Snorra.